Atvinnuleysi var 3,3% í desember 2022 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands, samanborið við 4,9% í nóvember síðastliðnum. Leitni árstíðaleiðrétts atvinnuleysis var þó stöðug í 3,8% síðustu sex mánuði.

Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 79,8% og hlutfall starfandi 77,2%. Leitni hlutfalls starfandi jókst um 0,5 prósentustig á seinni hluta síðasta árs.

Án árstíðaleiðréttinga voru 216.300 einstaklingar, ±7.500 vikmörkum, á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í desember sem jafngildir 78,1% (±2,7) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu voru 209.700 (±6.000) starfandi og 6.600 (±2.600) atvinnulausir og í atvinnuleit.

Hagstofan áætlar að 17.400 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu (slaki) í desember sem jafngildir 7,8% af samanlögðu vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Af þeim voru 38,1% atvinnulausir, 26,4% tilbúnir að vinna en ekki að leita, 4,5% í atvinnuleit en ekki tilbúnir að vinna og 31,0% vinnulitlir (starfandi í hlutastarfi og vilja vinna meira).

Slaki á vinnumarkaði hefur dregist saman um 4,6 prósentustig á milli ára samanborið við desember 2021. Leitni árstíðaleiðrétts slaka hefur dregist saman um 1,1 prósentustig síðustu sex mánuði.