Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var fjöldi fólks á vinnumarkaði 208.200 í júní 2019. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 81,5%, sem er einu prósentustigi hærra en í maí. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .

„Samkvæmt árstíðaleiðréttingu voru atvinnulausir 6.800 í júní, eða 3,3%, sem er einu og hálfu prósentustigi lægra en í maí. Fyrir sama tímabil hækkaði leiðrétt hlutfall starfandi fólks um 2,1 prósentustig, eða í 78,8% fyrir júní 2019. Þegar horft er til síðustu sex mánaða sýnir leitni að árstíðaleiðréttar tölur um atvinnuþátttöku standa nánast alveg í stað. Hlutfall starfandi lækkaði lítillega eða um hálft prósentustig um leið og atvinnuleysi jókst að sama skapi um hálft prósentustig," segir í frétt á vef Hagstofunnar.

„Samkvæmt óleiðréttum mælingum voru að jafnaði 216.000 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í júní 2019. Það jafngildir 84,0% atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu reyndust 209.100 vera starfandi og 6.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 81,4% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,2%."