Atvinnulausum Í Frakklandi fækkaði í júní síðastliðnum í fyrsta skipti í fjögur ár. Fjöldi aftinnulausra lækkaði um 28 þúsund og eru 2,7 milljónir landsmanna án atvinnu eða 10,1% vinnuaflsins. Hagfræðingar höfðu spáð því að atvinnuleysi myndi ekki dragast saman.