Atvinnuleysi á Suðurnesjum jókst um 10% á milli mánaða, þrátt fyrir að atvinnuleysi hafi minnkað á landsbyggðinni samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun. Alls voru 166 skráðir atvinnulausir á Suðurnesjum í júní meðan 182 voru skráðir í þessum mánuði. Þar af voru 54 karlmenn atvinnulausir og 128 konur.

Í Víkurfréttum er bent á að ef tölur um atvinnuleysi eru skoðaðar frá áramótum má sjá að atvinnuleysi hefur farið minnkandi á Suðurnesjum þar til nú. Í byrjun árs var 331 atvinnulaus og fór sú tala niður í 166 í síðasta mánuði.

Á þessu tímabili hafa fæstir verið atvinnulausir í Vatnsleysustrandarhreppi en flestir í Reykjanesbæ.