Atvinnuleysi í nóvember var 1,1% og hefur aukist lítillega frá því í október, segir í frétt Vinnumálastofnunar. Atvinnuleysið jókst töluvert á landsbyggðinni en minnkaði lítið eitt á höfuðborgarsvæðinu.

Aukning atvinnuleysis á landsbyggðinni kemur fram á flestum svæðum en er einna mest áberandi á Suðurnesjum þar sem áhrif uppsagna varnarliðsins eru nú að koma fram.

Á heildina litið eykst atvinnuleysi karla lítið eitt meira en kvenna en munurinn er lítill. Gera má ráð fyrir að atvinnuleysi aukist lítillega í desember líkt og undanfarin ár og geti farið í allt að 1,3%.