Skráð atvinnuleysi í september 2014 var 3,0%. Að meðaltali voru 5.029 atvinnulausir í mánuðinum og fækkaði atvinnulausum um 393 að meðaltali frá ágúst. Hlutfallstala atvinnuleysis lækkaði um 0,1% milli mánaða. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Vinnumálastofnun .

Í september fækkaði atvinnulausum körlum um 117 frá ágúst en að meðaltali voru 2.257 karlar á atvinnuleysisskrá og 2.772 konur en atvinnulausum konum fækkaði um 276 frá ágúst. Atvinnuleysið var 2,5% meðal karla og 3,6% meðal kvenna.

Atvinnulausum fækkaði að meðaltali um 378 á höfuðborgarsvæðinu og var atvinnuleysi 3,3% í september en var 2,4% á landsbyggðinni og fækkaði atvinnulausum þar um 15 frá ágúst. Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum, eða 4,5%. Minnst var atvinnuleysið á Norðurlandi vestra, eða 1,3%.