Atvinnuleysi á Ítalíu hefur aukist mikið á árinu. Í október mældist það 11,1% en 10,8% í september.

Um síðustu áramót sýndu mælingar 8,9% atvinnuleysi í landinu. Ekki hefur verið meira atvinnuleysi í landinu frá janúar 2004

Atvinnuleysi meðal 15-24 ára nam 36,5% en það er einnig met. Til samanburðar er atvinnuleysi á Spáni meðal sama hóps í kringum 50%.