191.000 manns á aldrinum 16-74 ára voru að jafnaði á vinnumarkaði í mars 2016, sem jafngildir 81,8% atvinnuþátttöku. Þetta er niðurstaða Vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands sem birt var í dag .  Af þeim voru 188.800 starfandi og 7.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var þvi 3,8% í mars.

Samanburður á milli ára sýnir að atvinnuþátttaka minnkaði lítillega eða um 0,2 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 1.400 en hlutfallið af mannfjölda stóð hins vegar í stað. Atvinnulausum fækkaði á milli ára sem um nemur 500 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu lækkaði um 0,3 stig.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 3,3% í mars

Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 194.300 í mars 2016 sem jafngildir 83,1% atvinnuþátttöku. Hlutfall starfandi fólks var 80,3% og jókst um 0,2 prósentustig á milli febrúar og mars 2016. Á sama tíma stóð atvinnuleysi nánast í stað, en það mældist  3,3% í mars en var 3,2% febrúar 2016.

Samkvæmt Hagstofnni sýna vinnuaflstölur síðustu sex mánuða að frá því í október 2015 hefur atvinnuþátttaka staðið í stað, atvinnuleysi lækkaði um 0,6 prósentustig og hlutfall starfandi fólks aukist um 0,5 stig.