Atvinnuleysi mældist 4,4% í nóvember. Það jafngildir því að 174.200 manns voru að jafnaði á vinnumarkaði, 166.500 starfandi og 7.600 án vinnu og í atvinnuleit, samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Atvinnuleysið var 0,7% meira í nóvember á síðasta ári en þá var það 5,1%.

Atvinnuleysi í nóvember á þessu ári var 4,9% á meðal karla miðað við 5,6% í nóvember í fyrra. Á meðal kvenna var það 3,8% miðað við 4,6% í nóvember í fyrra.