Atvinnulaus
Atvinnulaus
Atvinnuleysi í júlí 2011 mældist 6,6% sem er 0,1% lægra atvinnuleysi en í júnímánuði. Að meðatali voru 11.423 manns atvinnulausir í júlí og fækkaði um 281 að meðaltali frá júní samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunnar.

Atvinnuleysið var 7,6% á höfuðborgarsvæðinu en 5% á landsbyggðinni. Mest var það á Suðurnesjum 10,3%, en minnst á Norðurlandi vestra 2%. Atvinnulausum fækkaði um 166 á höfuðborgarsvæðinu og um 115 á landsbyggðinni.

Þá fækkaði körlum á atvinnuleysisskrá um 343 að meðaltali en konum fjölgaði hins vegar um 62. Atvinnuleysið var 6,5% meðal karla og 6,8% meðal kvenna.

Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði er nú 7.614 og fjölgar um 33 frá lokum júní og er um 62% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í lok júlí. Þeim sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár fækkar úr 4.609 í lok júní í 4.554 í lok júlí.

Í ágúst 2010 var atvinnuleysi 7,3%, en 7,5% í júlí 2010. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í ágúst 2011 breytist lítið og verði á bilinu 6,4% ‐ 6,7%.