Á þriðja ársfjórðungi 2006 voru að meðaltali 4.600 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 2,6% vinnuaflsins, segir í tilkynningu Hagstofu Íslands.

Atvinnuleysi mældist 2,2% hjá körlum en 3,0% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 5,1%.

Á þriðja ársfjórðungi 2005 mældist atvinnuleysi 1,8%. Atvinnuleysi karla var þá 1,2% en 2,4% hjá konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 3,5%.

Af þeim sem voru atvinnulausir á þriðja ársfjórðungi 2006 voru 1.400 búnir að finna vinnu sem hefst síðar, eða 30,4%, 1.900 manns eða 40,5% voru búnir að leita skemur en einn mánuð að vinnu og 700 manns, eða 15,4% voru búnir að leita lengur en 6 mánuði.

Fjöldi starfandi á þriðja ársfjórðungi 2006 var 173.300 manns og fjölgaði um 9.300 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 177.900 manns sem jafngildir 84,2% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 88,8% en kvenna 79,2%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Á þriðja ársfjórðungi 2005 mældist atvinnuþátttaka 83,1%. Hjá körlum var atvinnuþátttaka 88,3% en 77,7% hjá konum. Fólki á vinnumarkaði fjölgaði um 10.900 manns frá þriðja fjórðungi fyrra árs til jafnlengdar á þessu ári, mest í aldurshópnum 25-54 ára eða um 7.900 manns.