Atvinna
Atvinna
© AFP (AFP)
Atvinnuleysi í maí var 9,9% á Evrusvæðinu og 9,3% í Evrópusambandinu en var 7,4% hér á landi á sama tíma. Í júní mældist atvinnuleysið enn minna eða 6,7% hér á landi. Atvinnuleysi í OECD ríkjunum nam 8,1% í maí og mest atvinnuleysi var á Spáni eða rúm 20%. Athygli vekur að Ísland virðist ekki hafa skilað tölum um atvinnuleysi til OECD á árinu eftir mánuðum líkt og önnur lönd. Eingöngu tölur fyrir fyrsta fjórðung ársins eru í skýrslu OECD.