Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar er áætlað að 205.200 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í apríl 2018, sem jafngildir 81,9% atvinnuþátttöku.Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Af þeim voru 196.000 starfandi og 9.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,3% en hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 4,5%.

Samanburður mælinga fyrir apríl 2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið jókst um 6.700 manns en hlutfall þess af mannfjölda lækkaði um 1,1 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 3.400 manns en hlutfall þeirra af mannfjölda lækkaði um 2,3 prósentustig.

Atvinnulausir voru um 3.300 fleiri en á sama tíma árið 2017 og hlutfall þeirra hækkaði um 1,5 prósentustig. Alls voru 45.300 utan vinnumarkaðar í apríl 2018 og hafði þeim fjölgað um 4.800 manns frá því í apríl 2017 þegar þeir voru 40.500.