Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,9% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 6,7% í maímánuði. Þetta kemur fram í nýrri frétt Hagstofu Íslands .

Að jafnaði voru 197.100 á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í mánuðinum, sem jafngildir 84,5% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 183.900 starfandi og 13.200 án vinnu og í atvinnuleit.

Samanburður mælinga fyrir maí 2014 og 2015 sýnir að hlutfall vinnuafls og starfandi fólks af heildar mannfjölda stendur í stað. Atvinnulausum fækkaði lítillega eða um 700 manns og hlutfall atvinnuleysis er lægra sem nemur 0,5 prósentustigum.

Atvinnuleysi mældist 5,5% í aprílmánuði, en í frétt Hagstofunnar kemur fram að fyrri mælingar á atvinnuleysi sýni að í maí sé atvinnuleysi alltaf mest miðað við aðra mánuði ársins. Ástæður þessarar aukningar sé að á vormánuðum komi ungt fólk í auknum mæli á vinnumarkaðinn í leit að sumarstörfum.