Atvinnuleysi í síðasta mánuði var 6,8%, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn voru að jafnaði 181.700 manns á vinnumarkaði.

Af þeim voru 169.300 starfandi og 12.300 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 79,3%, hlutfall starfandi 73,9% og atvinnuleysi var 6,8%. Samanburður mælinga í janúar 2013 og 2014 sýnir að atvinnuþátttaka jókst um 0,7 prósentustig og hlutfall starfandi minnkaði um 0,2 prósentustig. Hlutfall atvinnulausra jókst á sama tíma um eitt prósentustig.