Efling segist hafa fengið vitneskju um tilfelli þar sem atvinnurekendur á félagssvæði Eflingar hafa haft óeðlileg afskipti af þátttöku félagsmanna í atkvæðagreiðslum um verkfallsboðun.

Um er að ræða tilfelli bæði á hótelum og í hópbifreiðafyrirtækjum segir í fréttatilkynningu frá félaginu. Formaður Eflingar hefur sent almennt erindi til hótelrekenda og forsvarsmanna hópbifreiðafyrirtækja vegna þessa.

Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, hefur haft samband við framkvæmdastjóra nokkurra fyrirtækja í hótel- og hópbifreiðageiranum vegna kvartana frá félagsmönnum og minnt á réttindi þeirra. „Hér er því miður um ákveðið mynstur að ræða,“ segir Viðar. „Við söfnum upplýsingum um þessi tilvik og munum svo vega og meta til hvaða aðgerða verður gripið,“ bætti hann við.

Kalla fundi og skilaboð hótanir til starfsmanna

Samkvæmt frásögnum félagsmanna hafa yfirmenn boðað til funda og látið frá sér skrifleg skilaboð þar sem því er hótað að verkfallsaðgerðir og jafnvel kosningaþátttaka ein geti hafi skaðlegar efnahagslegar afleiðingar fyrir starfsmenn.

Slíkt er að mati Eflingar brot á lögum nr. 80 frá árinu 1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. Brot á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur varða skaðabótum og sektum og áskilur Efling sér allan rétt til málshöfðana fyrir Félagsdómi vegna slíkra brota.

Rétturinn til verkfallsaðgerða er lögvarinn og er einn af hornsteinum íslenskrar vinnumarkaðslöggjafar. Að atvinnurekendur beiti starfsmenn þrýstingi í verkfallskosningu gengur í berhögg við lög um stéttarfélög og vinnudeilur.

Samkvæmt 4. grein þeirra laga er skýrt kveðið á um að atvinnurekendum sé óheimilt að reyna að hafa áhrif á afskipti verkafólks af vinnudeilum eða annarri starfsemi stéttarfélaga. Auk þess er rétturinn til þátttöku í stéttarfélögum, þar með talið atkvæðagreiðslum, varinn af stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu.

Lögðu á sig að stuðla að sem mestri þátttöku

„Það er sorglegt að atvinnurekendur skuli standa í vegi fyrir því að félagsmenn Eflingar geti tekið afstöðu í löglega boðaðri atkvæðagreiðslu,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

„Við höfum lagt mikið á okkur við að kynna atkvæðagreiðslur okkar fyrir félagsmönnum og stuðla að sem mestri þátttöku þeirra. Þetta er lýðræðislegur og lögvarinn réttur þeirra. Efling tekur allar tilraunir til að beita félagsmenn okkar óeðlilegum þrýstingi mjög alvarlega.“