242.000 störf bættust við í febrúar í Bandaríkjunum sem er nokkuð meira en þeim 190.000 sem flestir greiningaraðilar höfðu búist við. Þetta kemur fram í nýjustu tölum frá Bandarísku vinnumálastofnuninni. Tölur frá því í desember og janúar voru uppfærðar og við þá mánuði bættust 30.000 störf.

Atvinnuleysi mældist 4,9% í febrúar og var óbreytt frá janúarmánuði en það hefur ekki verið lægra í átta ár.

Vöxtur 12 mánaða launavísitölu í Bandaríkjunum hægðist úr 2,5% í janúar  í 2,2% í febrúar.