Atvinnuleysi var 3,8% í september og dróst saman um 0,3% frá fyrra ári en árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 4% í september. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni sem birtust í morgun.

Heildar fjöldi þeirra sem eru nú atvinnulausir eru 7.100 en starfandi eru 181.300.

Atvinnþátttaka jókst milli ára um 2,3% og er nú 81,4%.

Atvinnuleysi fór hæst í 9,3% í febrúar og mars árið 2010 en hefur farið lækkandi síðan þá.