Stjórn Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar mun funda í dag eftir að í ljós er komið að Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson framkvæmdastjóri félagsins sætir ákæru í svokölluðu Stím-máli. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.

Greint var frá því í gær að Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis banka, Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta Glitnis, og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, sem var forstjóri Saga Capital, væru ákærðir fyrir aðild sína að málinu.

Stím-málið snýst um það að Stím keypti hlutabréf í Glitni og FL Group fyrir tæplega 25 milljarða króna þann 14. nóvember 2007 af Glitni. Um 20 milljarðar króna voru fengnir að láni hjá Glitni og viðskiptin voru teiknuð upp af starfsmönnum bankans. Vildarviðskiptavinum var síðan boðið að leggja fram 10% eiginfjárframlag og vera með í Stím. Með þessu var Glitnir að tæma hina svokölluðu veltubók sína, en bankinn mátti ekki eiga meira en 5% hlut í sjálfum sér. Þar sem engin eftirspurn var eftir svona magni af hlutabréfum í félögunum tveimur voru búin til sýndarviðskipti til að virði hlutabréfanna myndu ekki lækka.