Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur gert athugasemdir við þá ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA að hefja formlega rannsókn á framkvæmd laga um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að lögin hafi verið sett árið 2010 og hafi öðlast gildi eftir yfirferð og samþykkt ESA um að kerfið væri í samræmi við reglur EES samningsins. Síðan þá hafi verið gerð ein breyting á reglugerð sem hafi ekki haft í för með sér efnislegar breytingar á hinu samþykkta kerfi. Þá hafi verið samþykkt á Alþingi í mars 2013 breyting á lögunum sem ekki hafi enn komið til framkvæmda þar sem hún sé háð samþykki ESA og hafi verið til meðferðar hjá stofnuninni undanfarna mánuði.

Samkvæmt tilkynningunni hafa sex fjárfestingarsamningar frá gildistöku laganna 2010 og hafa þeir allir verið birtir opinberlega. Yfirvöld hafi haft fullan vilja til að standa rétt að öllum form- og efnisatriðum í samræmi við ákvörðun ESA frá 2010 þegar kerfið var samþykkt.

Ráðuneytið hefur í dag sent ESA greinargerð þar sem farið er yfir forsendur á bak við hvern og einn fjárfestingarsamning ásamt rökstuðningi um að rétt hafi verið staðið að gerð þeirra. Samkvæmt tilkynningunni er ráðuneytið bjartsýnt á að rannsókn ESA leiði það í ljós og vonar ráðuneytið að rannsóknin taki sem skemmstan tíma.

Áhrif þessarar ákvörðunar ESA er sú að á meðan á rannsókn stendur þarf fyrirfram samþykki ESA áður en nýr fjárfestingarsamningur sem gerður er á grundvelli ívilnanalaganna tekur gildi.