Heimdallur, félag ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, hélt í gær opinn málfund um nýtt frumvarp um breytingar á áfengislögum. Meðal þeirra sem héldu erindi á fundinum var Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, en hann hefur tjáð sig mikið um málið.

Í erindi sínu sagði Ögmundur að heppilegast væri að halda fyrirkomulaginu í áfengissölu eins og það er, t.d. vegna þess að það tryggi gott vöruúrval áfengisverslana á landsbyggðinni.

Aðrir ræðumenn á málfundinum voru Vilhjálmur Árnason , Pawel Bartoszek og Ari Matthíasson .