Vínbúðirnar verða lokaðar bæði á Þorláksmessu og daginn fyrir gamlársdag að þessu sinni. Dagana ber upp á sunnudag og samkvæmt áfengislögum er óheimilt að hafa áfengisverslanir opnar á sunnudögum.

Í tilkynningu frá ÁTVR segir að á Þorláksmessu í fyrra hafi 32.568 manns verið afgreiddir í Vínbúðunum og 30. desember voru 38.156 afgreiddir. Í vikunni fyrir jól í fyrra voru afgreiðslur 113.433 og í vikunni fyrir áramót voru þær 94.765. Ljóst er því að margir verða að breyta út frá innkaupavenjum sínum í ár.

Reynt verður að koma sem best til móts við þarfir viðskiptavina Vínbúðanna í kringum hátíðarnar. Afgreiðslutíminn á höfuðborgarsvæðinu og í stærri verslunum svo sem á Akureyri, Keflavík og Selfossi er til tíu um kvöldið laugardaginn 22. desember. Fimmtudag og föstudag fyrir jól er afgreiðslutíminn frá ellefu að morgni til átta um kvöldið og sama á við um föstudag og laugardag fyrir áramót. Opið er frá 9 – 13 á aðfangadag og frá 9 – 14 á gamlársdag. Vínbúðirnar í Kringlunni og Smáralind verða þó ekki opnaðar fyrr en 10.00 þessa daga.

Upplýsingar um afgreiðslutíma vínbúðanna um allt land er að finna á vinbud.is og er fólk hvatt til að kynna sér hann áður en lagt er af stað í innkaupaferð. ÁTVR verður einnig með auglýsingaherferð fyrir jólin þar sem farið verður yfir afgreiðslutíma yfir hátíðarnar.