Auður Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri Lífsverks lífeyrissjóðs, lét af störfum um mánaðamótin eftir samkomulag við stjórn sjóðsins.  Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Lífsverks.

Auður hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra sjóðsins frá því í desember 2010. Lýður H. Gunnarsson hefur verið settur framkvæmdastjóri í hennar stað en hann hefur verið forstöðumaður eignastýringar sjóðsins. Mun hann gegna stöðunni þar til nýr framkvæmdastjóri verður ráðinn.

„Stjórn þakkar Auði fyrir vel unnin störf við þá uppbyggingu sem nauðsynleg reyndist í kjölfar bankahrunsins 2008,“ segir í fréttinni.