Samruni framleiðslufyrirtækjanna Sagafilm og GunHil tók formlega gildi um mánaðamótin, en greint var frá því í nóvember síðastliðnum að fyrrnefnda fyrirtækið myndi kaupa allt hlutafé í því síðarnefnda. Samhliða kaupunum var Hilmar Sigurðsson, forstjóri GunHil, ráð inn forstjóri Sagafilm, og hefur hann gegnt því starfi frá áramótum. GunHil, sem framleiðir tölvuteiknimyndir, verður áfram rekið sem sjálfstætt dótturfélag Sagafilm.
Hilmar segir augljóst að íslensk framleiðsla sé í síauknum mæli að njóta mikillar hylli erlendis. Nefnir hann sem dæmi að Réttur 3, sem á ensku nefnist „Case“, nær til um 200 milljóna áhorfenda m.a. í gegnum Netflix og HBO í Evrópu auk fleiri áskriftarstöðva.
„Við finnum meðbyrinn eftir að hafa komið þeirri þáttaröð á erlendan markað. Þá verður það auðveldara með næstu þáttaröð. Til dæmis hefur Stella Blómkvist verið seld til tuga landa,“ segir Hilmar. Önnur sjónvarpsþáttaröð sem er nú í bígerð hefur þegar vakið athygli stórs erlends dreifingaraðila sem borgar á annað hundrað milljónir fyrir dreifingarrétt á þeirri þáttaröð erlendis.
„Það sama á við um Lóa, við gengum t.d. frá samningi í Cannes sem nær einungis til Frakklands og samningsvirði hans, með dreifingu, fjárfestingum í auglýsingum og öðru, er einnig á annað hundrað milljónir. Sem teiknimynd er Lói í raun alþjóðlegri og auðvelt að framleiða á mörgum tungumálum, en Réttur 3 er á íslensku og það er í sjálfu sér stórmerkilegt hvernig eftirspurnin eftir þessu efni vex,“ segir Hilmar.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð.