Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ávarpaði hádegisverðarfund Félaga viðskipta- og hagfræðinga í dag. Tilefni fundarins var 25 ára afmæli Þjóðarsáttarsamninganna svokölluðu. Sigmundur Davíð benti á að aðstæður væru vissulega aðrar í dag en þær hafi verið fyrir aldarfjórðungi.

„Jafnvægi í hagkerfinu er meira og stoðir þjóðarbúskaparins fleiri," sagði Sigmundur Davíð. „Íslenska hagkerfið er um það bil tvöfalt stærra nú en það var fyrir aldarfjórðungi.  Þrátt fyrir þetta eru augljósar hættur framundan svo sem sjá má á þeim launakröfum sem stéttarfélög eru að setja fram þessa dagana í aðdraganda kjarasamninga.“

Forsætisráðherra sagði að þegar litið væri til launaþróunar á síðustu árum sjáist að þokkalegt jafnvægi sé á milli einstakra hópa á vinnumarkaði og ekki innistæða fyrir þeim kjarnyrtu yfirlýsingum sem settar hafi verið fram að undanförnu. Hann benti á að kaupmáttur launa hefði aukist um 5,5% á síðustu tólf mánuðum.

„Þetta er gríðarlegur árangur. Launahækkun um 6,3% nýtist næstum að öllu leyti í kaupmátt þegar verðbólgan er undir einu prósenti. Stóran þátt í þessum árangri eiga stöðugleikasamningar sem aðilar vinnumarkaðarins gerðu á síðasta ári.  Þetta hefur leitt til þess að kaupmáttur launa hefur aldrei verið hærri en nú.“

Sigmundur Davíð lagði í loki ræðu sinnar áherslu á að dyr ríkisstjórnarinnar stæðu opnar.

„Ég vil því nota tækifærið og hvetja aðila vinnumarkaðarins til að taka þátt í virku samtali við ríkisstjórnina þar sem færi gefst til að skiptast á skoðunum, leggja línur og veita upplýsingar. Við þurfum sameiginlega að viðhalda stöðugleikanum því hann er vísasti vegurinn til að auka kaupmátt.“