Fasteignafélagið Reginn hefur auglýst eftir leiganda að Apótekinu í Austurstræti. Eins og kunnugt er keypti Reginn fasteignina á dögunum af Karli Steingrímssyni, eða Kalla í Pelsinum.  Í auglýsingunni er óskað eftir kröftugum og reyndum samstarfsaðilum um nýtingu fasteignarinnar.

Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, sagði við VB.is á dögunum að hann sæi fyrir sér hótel og veitingarekstur í húsinu.