Íslandsstofa og Samtök iðnaðarins hafa sameinast um gerð myndbands sem kynnir hvað Ísland hefur upp á að bjóða fyrir erlenda sérfræðinga sem vilja taka þátt í uppbyggingu hátækni- og hugverkaiðnaðar hér á landi. Myndbandið sem nefnist Work in Iceland var frumsýnt í dag í beinu streymi þar sem ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra flutti ávarp.

Myndbandið er sagt vera mikilvægt skref í þeirri vegferð að efla markaðssetningu á Íslandi sem ákjósanlegan stað til búsetu og atvinnu í tilkynningu. Í myndbandinu er rætt við átta erlenda sérfræðinga frá Marel, Alvotech, CCP og Algalíf sem hafa sest að á Íslandi og segja þeir frá helstu kostum þess að búa og starfa hér á landi.

Eitt af lykilskilyrðum fyrir vöxt hugverkafyrirtækja hér á landi er sagt vera aðgangur að sérfræðiþekkingu em oft á tíðum þurfi að leita út fyrir landssteinana að þekkingu og reynslu til að byggja upp stór alþjóðleg tæknifyrirtæki hér á landi.

Hér má sjá myndbandið:

Sigurður Hannesson , framkvæmdastjóri SI:

„Skortur á sérfræðiþekkingu hefur verið ein af þeim áskorunum sem hátækni- og hugverkafyrirtæki hafa staðið frammi fyrir. Þau hafa því í auknum mæli leitað út fyrir landssteinana að þeirri þekkingu sem þarf til að þau geti vaxið og dafnað hér á landi. Myndbandið beinir kastljósinu að því sem gerir Ísland að ákjósanlegum stað til búsetu og starfa sem gæti auðveldað fleirum að taka þá ákvörðun að taka þátt í vexti hugverkaiðnaðar, sem er orðin mikilvæg stoð í gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins.“

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir , ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra:

„Við höfum upp á mikið að bjóða fyrir erlenda sérfræðinga en getum líka lært mikið af þeim. Með því að markaðssetja Ísland sem ákjósanlegan stað fyrir erlenda sérfræðinga til að búa og starfa styrkjum við nýsköpunarumhverfið og búum því jarðveg þar sem hugmyndaríkt hæfileikafólk mætist og stækkar sjóndeildarhringinn hvert hjá öðru. Þannig búum við til mikilvægar tengingar fyrir nýsköpunarumhverfið og höldum áfram að þroska það.“

Pétur Óskarsson , framkvæmdastjóri Íslandsstofu:

„Það er margt við íslenska samfélagsgerð sem við tökum sem gefnu sem aðrir telja til mikilvægra samfélagslegra gæða. Þegar Íslandsstofa vann að gerð útflutningsstefnu fyrir Ísland kom skýrt í ljós hversu mikilvægt það er fyrir íslensk fyrirtæki að hafa aðgang að starfsmönnum um allan heim með ólíka sérþekkingu. Vefurinn Work in Iceland og önnur verkefni Íslandsstofu taka því nú aukið mið af mikilvægi þess að vekja áhuga á Íslandi sem áhugaverðum stað til að búa og starfa.“