Borgarstjórinn í Reykjavík hefur auglýst stöðu borgarritara lausa til umsóknar, en eins og Viðskiptablaðið sagði frá var Stefán Eiríksson núverandi borgarritari ráðinn sem nýr Útvarpsstjóri í stað Magnúsar Geirs Þórðarsonar sem tekur hefur við sem Þjóðleikhússtjóri.

Samkvæmt fréttatilkynningu borgarinnar er leitað að kraftmiklum leiðtoga sem býr yfir frumkvæði og faglegum metnaði, er annt um umhverfi sitt, samfélag og velferð íbúa, en borgarritari er æðsti embættismaður Reykjavíkurborgar að borgarstjóra undanskildum.

Meðal hæfniskrafna borgarstjóra fyrir borgarritara, sem ráðgefandi hæfnisnefnd mun gera mat á, er að:

  • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi.
  • Leiðtogahæfileikar, farsæl reynsla af stjórnun ásamt reynslu af því að leiða breytingar.
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, stefnumótun og áætlanagerð.
  • Þekking og reynsla af rekstri og mannaforráðum.
  • Þekking og reynsla af samningagerð og undirbúningi samninga.
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Framsýni, metnaður, frumkvæði og skipulagshæfileikar.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku. Kunnátta í öðrum tungumálum er kostur.

Í hæfnisnefndinni sitja þau Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, sem jafnframt er formaður, Ásta Bjarnadóttir, mannauðsstjóri Landspítalans, og Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands. Intellecta heldur svo utan um ráðningarferlið.

Ætlað að auka gagnsæi og upplýsingaflæði

Borgarritari fer með forystu- og samhæfingarhlutverk í stjórnsýslu og þjónustu borgarinnar, en hann er einn af staðgenglum borgarstjóra og tilheyrir yfirstjórn Reykjavíkurborgar.

Hlutverk hans er að sjá til þess að stefnumörkun borgarráðs og borgarstjórnar sé fylgt eftir með upplýsingamiðlun og stoðþjónustu við fagsvið borgarinnar, auk þess að halda uppi eftirlit með að framkvæmd sé í samræmi við markaða stefnu og fjárhagsheimildir og hefur yfirumsjón með miðlægri stjórnsýslu og stoðþjónustu á vegum Reykjavíkurborgar.

Þá er borgarritara ætlað að stuðla að lýðræðislegum stjórnunarháttum með því að auka gegnsæi og styrkja upplýsingaflæði milli stjórnenda, sviða og stofnana borgarinnar, íbúa og annarra samráðsaðila að því er segir í tilkynningunni.

Borgarritari fer jafnframt fyrir samningateymi Reykjavíkurborgar í samskiptum við ríkið, er tengiliður Reykjavíkurborgar við byggðasamlög og B-hluta félög og við atvinnulífið í Reykjavíkurborg og á landsvísu.
Borgarritari leiðir einnig stór og flókin verkefni sem kalla á samhæfingu og samræmingu innan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar og utan þess. Undir borgarritara heyra skrifstofa borgarstjóra og borgarritara og mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa.