Heimasíða Hagstofu Íslands notar leitarvélina Google og þegar leitin á síðunni er notuð koma auglýsingar efst sem keyptar hafa ver­ið af fyrirtækj­um í gegnum Google.

T.d. þegar leitarorðið ráðstefnur er slegið inn kemur efst í leitarniðurstöðum tvær keypt­ar ábendingar frá ráðstefnuhöldurunum Lækjarbrekku og Iceland Congress.

Samkvæmt upplýsingum frá starfsfólki Hagstofu Íslands vissi það ekki af þessum auglýsingum og unnið er að því að fá auglýsingarnar fjarlægðar af vef Hagstofunnar.