Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri RÚV, verður starfandi Útvarpsstjóri þangað til nýr Útvarpsstjóri verður fundinn.

Stjórn RÚV ákvað í gærkvöld að auglýst verði eftir nýjum Útvarpsstjóra í dagblöðum á morgun. Á vef RÚV kemur fram að umsóknarfrestur verður til og með 6. janúar og hefur Capacent verið falið að hafa umsjón með ráðningarferlinu.

Eins og kunnugt er sagði Páll Magnússon upp störfum í vikunni. Hann bar við trúnaðarbresti milli sín og stjórnarinnar. Ingvi Hrafn Óskarsson, stjórnarformaður RÚV, sagði hins vegar í samtali við VB.is að vegna nýrra laga um RÚV hafi þurft að auglýsa stöðuna að nýju.