Eitt mest aðlaðandi starf í heimi er fundið. Það er dýragaður í Kína sem auglýsir eftir fólki sem mun hafa það að aðalstarfi að verja tíma með pandabjarnarhúnum, sýna þeim væntumþykju sína og knúsa þá.

Pandafóstrurnar munu fá 200 þúsund yuan á ári sem jafngildir um 3,8 milljónum króna og þeir munu einnig njóta fríðinda eins og ókeypis kvöldmáltíða, gistingar og aksturs.

Dýragarðurinn mun taka við umsóknum þangað til 15. lúlí næstkomandi. Umsækjendur verða að vera minnst 22 ára gamlir og hafa grundvallarþekkingu á pandabjörnum.