Forráðamenn Apple misreiknuðu vinsældir iPhone 6 Plus símans. Síminn er töluvert stærri en iPhone 6 eða með 5,5 tommu skjá á meðan hefðbundni síminn er með 4,7 tommu skjá. iPhone 6 Plus er svar Apple við Samsung Galaxy Note 4 símanum en Samsung síminn er samt aðeins stærri eða með 5,7 tommu skjá.

Vegna vinsælda stóra iPhone símans hefur framleiðsla á honum verið aukin á kostnað hins að því er fram kemur á vefmiðlinum Digitimes .

Apple mun hefja sölu á iPhone 6 og 6 Plus í Kína í lok næstu viku og þá opnast risastór markaður.