Danski fjárfestingarsjóðurinn William Demant Invest, dótturfélag Oticon Foundation, sem er stærsti eigandi Össurar hefur aukið við hlut sinn í fyrirtækinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.

Niels Jacobsen stjórnarformaður Össurar er varastjórnarformaður William Demant.

Félagið bætir við sig 3.405.000 hlutum í fyrirtækinu og er kaupverðið 30,2 danskar krónur á hlut. Á William Demant nú um 44,5% hlut í Össur.