Nýjar tölur um atvinnuleysi voru kynntar í Bandaríkjunum í dag. Þær sýna að atvinnuleysi hefur ekki verið meira í 9 mánuði sem vekur upp ótta að staða bandarísk efnahagslífs fari fari versnandi. Dow Jones og Nasdaq vísitölurnar hafa lækkað í kringum 1,5% það sem af er degi en markaðir á Wall Street loka kl. 20 að íslenskum tíma. Bandaríkjadalur hefur lækkað um 0,3% gagnvart evru.