Undirritaður hefur verið samningur milli Sjóvá og Auðhumlu svf. um hóprekstrarstöðvunartryggingu fyrir mjólkurframleiðendur.

Í tilkynningu vegna samningsins segir að tilgangur vátryggingarinnar sé að greiða í allt að 24 mánuði þann tekjumissi sem mjólkurframleiðendur kunna að verða fyrir komi til bótaskylds tjóns úr brunatryggingu þeirra með þeim afleiðingum að röskun verður á framleiðslunni eða hún stöðvast alveg.  Sama gildir ef óveðurstjón hafa slík áhrif á framleiðsluna.

Samningurinn markar viss tímamót því bæði er hér um að ræða nýjung í vátryggingavernd fyrir bændur og aldrei áður hafa bændur tryggt sig með því fyrirkomulagi sem samningurinn kveður á um.

Að frumkvæði Sjóvá voru teknar upp viðræður um þróun þessarar vátryggingalausnar fyrir alla kúabændur innan Auðhumlu, en Sjóvá hefur í nokkur ár haft á boðstólnum sérstaka rekstrarstöðvunarvernd fyrir mjólkurframleiðendur.  Í samningnum er m.a. kveðið á um samstarf  til þess að þróa tryggingarverndina frekar jafnframt því sem Sjóvá mun hafa milligöngu um að veita aðang að sérfræðingum í því skyni að veita faglega forvarnaráðgjöf um ráðstafanir í fjósum til þess að koma í veg fyrir tjón eða draga úr alvarleika þeirra.

Með þessu samstarfi félaganna er stigið ákveðið skref til hagsbóta fyrir mjólkurframleiðendur sem mun styrkja enn frekar undirstöður greinarinnar, segir í tilkynningunni.