Katrín Júlíusdóttir, fjármálaráðherra, tilkynnti á blaðamannafundi í morgun að fjárhagsupplýsingar ríkisins væru nú aðgengilegar almenningi. Gögnin verða aðgengilega á vefsvæðinu gogn.island.is .

Jafnframt sagði Katrín að hún vonaðist til að áfram yrði unnið með þessar upplýsingar og að gegnsæi sem þetta myndi auka traust.