Hægt er að auka framleiðni ef fyrirtæki nýta sér samfélagsmiðlana. Þetta getur komið sér vel fyrir lítil fyrirtæki sem geta hratt og örugglega náð til viðskiptavina sinna.

Louis Richardson, sérfræðingur IBM í Social Business, heldur fyrirlestur um samfélagsmiðla innan fyrirtækja á morgun á vegum Nýherja.