Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri nam 486 milljarða króna í janúar samanborið við 441 milljarða króna á sama tíma í fyrra. Hefur veltan því aukist um 10% ef bornir eru saman mánuðirnir. Velta Seðlabankans á markaðnum í janúar nam 1,0 milljarða króna eða 0,2% af veltu. Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri jókst um 27% í janúar frá mánuðinum á undan.