Icelandair Group kemur til með að birta afkomu 4. ársfjórðung 2016 og ársins í heild eftir lokun markaða þann 7. febrúar næstkomandi. Drög að ársreikningi liggja þó fyrir og samkvæmt drögunum verður EBITDA ársins 2016 í heild í efri mörkum þess bils sem félagið hefur birta á markaði eða 210 til 220 milljónir dollarar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Icelandair Group til Kauphallarinnar.

Bókanir hægari og meðalfargjöld hafa lækkað

Í tilkynningu Icelandair Group segir meðal annars að breyting hafi orðið í bókunarflæði fyrirtækisins til hins verra. „Bókanir eru hægari en gert var ráð fyrir og meðalfargjöld á mörkuðum hafa lækkað umfram spár. Þessa þróun má einkum rekja til aukinnar samkeppni en einnig má leiða líkur að því að óvissa vegna breytinga í alþjóðastjórnmálum hafi áhrif á eftirspurn.  Að auki hafa gjaldmiðlar þróast á óhagstæðan máta miðað við fyrra ár, olíuverð hefur hækkað og verkfall í sjávarútvegi hefur neikvæð áhrif á fraktstarfsemi félagsins. Á móti kemur að horfur í hótelstarfsemi Icelandair Group eru góðar.“

Aukin hagræðing - langtímahorfur góðar

Ef gert er ráð fyrir núverandi forsendur gerir Icelandair Group ráð fyrir að EBITDA ársins 2017 verði 140 til 150 milljónir dollara. „Gert er ráð fyrir að verð á þotueldsneyti (án tillits til varna) verði 540 USD/tonn að meðaltali, gengi EUR gagnvart USD verði að meðaltali 1,07 og gengisvísitala íslensku krónunnar verði 164 að meðaltali á árinu 2017,“ segir í tilkynningunni.

Nú þegar hefur félagið gripið til hinna ýmsu aðgerða í rekstri samstæðunnar sem gert er ráð fyrir að skili hagræðingu og auknum tekjum. Það er áfram gert ráð fyrir hóflegum innri vexti á árinu, og að mati stjórnenda félagsins eru langtímahorfur þess góðar.

„Í takt við stefnu félagsins var efnahagsreikningur félagsins sterkur í árslok 2016. Samkvæmt drögum að ársreikningi var eiginfjárhlutfall ríflega 40% og handbært fé og markaðsverðbréf um 250 milljónir Bandaríkjadala. Félagið er því vel í stakk búið til að takast á við þær sveiflur sem eiga sér stað í rekstrarumhverfi þess,“ segir í lokum fréttatilkynningarinnar.