Í júlímánuði flutti Wow air 212.611 farþega til og frá landinu, sem er 105% aukning frá júlímánuði árið 2015. Var sætanýtingin 92%, sem er þremur prósentustigum meiri sætanýting en fyrir ári.

Aukið sætaframboð

Á sama tíma jókst sætaframboðið þó um 102% ef horft er á júlímánuði milli ára. Fjölgaði framboðnum sætiskílómetrum um 139% í júlí frá því á sama tíma í fyrra.

Wow air hefur frá því sem af er árinu flutt 761 þúsund farþega sem er 109% aukning farþega á sama tímabili frá árinu áður.

Kanadískum ferðamönnum fjölgaði

Jafnframt hefur fjöldi ferðamanna frá Kanada aukist töluvert milli ára, en Wow air hóf áætlunarflug til Toronto og Montréal í Kanada í maí og flýgur þangað allan ársins hring.

Fjölgaði kanadískum ferðamönnum um 66% í maí og 106% í júní samkvæmt tölum Ferðamálastofu. Komu 4.475 kanadískir ferðamenn í maí í fyrra, en í ár voru þeir 7.421. Í júní fyrir ári komu 6.355 frá Kanada en í ár voru þeir 13.087.