Klasasamstarf getur aukið samkeppnishæfni fyrirtækja og aukið uppbyggingu ólíkra svæða. Þetta segir Ifor Ffowcs Williams sem er staddur hér á landi til að fjalla um klasauppbyggingu.

Hann gaf nýlega út bókina Cluster Development - The GoTo Handbook. Í bókinni er farið í innleiðingu á aðferðafræði klasa skref fyrir skref. Williams stofnaði og var framkvæmdastjóri og stjórnarformaður ráðgjafanefndar hjá alþjóðlegau netverki sem miðar að því að bæta samkeppnissvæði landa og landssvæða.