Viðskiptaráð Íslands segir að þrátt fyrir brýna þörf sé ekki gert ráð fyrir áframhaldandi aðhaldi í ríkisrekstri heldur vaxi útgjöld umtalsvert á milli ára. Það megi fyrst og fremst rekja til hærri launakostnaðar ríkisins. Þetta kemur fram á vef ráðsins .

Í gær lagði fjármála- og efnahagsráðherra fram frumvarp til fjárlaga ársins 2016, en samkvæmt því aukast áætlaðar skatttekjur um 45 milljarða króna á milli ára. Viðskiptaráð segir að skortur á aðhaldi þegar kemur að launakostnaði valdi áhyggjum en tímabærar skattalækkanir séu hins vegar fagnaðarefni.

Gæti ýtt undir þenslu

„Launaútgjöld hækka um 15 ma. kr. á milli ára, sem jafngildir um 10% aukningu. Þar gætir áhrifa þeirra kjarasamninga sem gerðir hafa verið við fjölmenna hópa opinberra starfsmanna,“ segir í umfjölluninni.

Segir Viðskiptaráð að vegna mikilla hækkana í þeim samningum sé fyrirséð að þessi kostnaður muni aukast enn frekar á næstu árum. Hætt sé við því að það ýti undir þenslu á komandi misserum.

Skattalækkanir tímabærar en ganga hefði átt lengra

Viðskiptaráð fagnar því að stjórnvöld skili hluta tekjuaukans í formi skattalækkana.

„Afnám tolla á allar vörur nema matvörur er sérstakt fagnaðarefni, en slík skattheimta hefur verulega neikvæð áhrif á lífskjör hérlendis án þess að afla hinu opinbera markverðra tekna. Þá er lækkun tekjuskatts einstaklinga og fækkun þrepa einnig fagnaðarefni, en sú breyting eykur hvata millitekjufólks til að auka við tekjur sínar,“ segir í umfjöllun Viðskiptaráðs.

Viðskiptaráð segir aftur á móti að ganga hefði átt lengra við lækkun skatta. Skattalækkanir nemi einungis um fjórðungi af aukningi skatttekna ríkissjóðs á milli ára.

„Sérstök vonbrigði eru að tryggingagjöld hafi ekki lækkað í ljósi þess að atvinnuleysi hefur lækkað verulega á undanförnum misserum. Þá myndi lækkun tryggingagjalda einnig vinna gegn verðbólguáhrifum nýlegra kjarasamninga. Auk þess hefði mátt lækka fjármagnstekjuskatt, en vaxandi verðbólga á næstu árum mun leiða til aukinnar skattheimtu á sparnað með neikvæðum afleiðingum fyrir fjárfestingu.“