Vegna aukinna umsvifa í Evrópuflutningum Samskipa hefur félagið tekið upp samstarf við hafnaryfirvöld í Zeebrugge í Belgíu um uppbyggingu gámamiðstöðvar þar. Hefjast siglingar á vegum Samskipa á milli Zeebrugge og hafna á Írlandi nú í janúar, segir í tilkynningu frá Samskipum.
Að sögn Ásbjörns Gíslasonar, forstjóra Samskipa verður Rotterdam þó áfram þungamiðjan í Evrópuflutningum hjá fyrirtækinu en þó var orðið nauðsynlegt að byggja upp nýja gámamiðstöð í Evrópu.
Við valið á Zeebrugge skipti sköpum að þar er enn gott landrými fyrir hafnarstarfsemi, ólíkt því sem er víða í öðrum Evrópuhöfnum. Í tilkynningunni segir að Samskip hefji siglingar vikulega milli Zeebrugge og hafna á Írlandi nú í janúar.