Velta á fasteignamarkaði nam rúmlega  3,7 milljörðum króna í síðustu viku og jókst um 7% á milli vikna, aðra vikuna í röð, en í fyrri viku nam hún um 3,5 milljörðum króna samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið var 111 en voru 104 í vikunni þar áður.

Velta á fasteignamarkaði hefur aukist síðustu þrjár vikur en meðalvelta á hvern samning er líkt og í fyrri viku 33,9 milljónir króna samkvæmt FMR. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Þinglýstir samningar eru að meðaltali 84,4 á viku en hafa sem fyrr segir aukist síðustu þrjár vikur. Ef litið er til ársbreytingar á veltu hefur kaupsamningum fækkað um 26%

Á meðfylgjandi línuriti má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu nokkurra vikna og breytinga á henni milli ára.