Verðbólgan mun sennilega reynast 4,2% í september en núna er hún 3,7% segir Greining Íslandsbanka. "Verðbólgan rýfur því á ný efri þolmörkin í markmiði Seðlabankans (4%) og þarf bankinn í framhaldinu að gera ríkisstjórninni skriflega grein fyrir áformum sínum til að ná tökum á henni," segir Greining Íslandsbanka. Þeir segja hins vegar að reikna megi með að verðbólgan muni hjaðna lítillega á næstu mánuðum og fari jafnvel aftur undir efri þolmörkin strax í október. Miðað við fast gengi krónunnar er útlit fyrir að verðbólgan yfir þetta ár reynist 3,6% og aðeins 3,1% þegar horft er yfir næsta ár. "Við teljum þó ólíklegt að krónan haldist jafn sterk og hún er núna fram á næsta ár," segir Greining Íslandsbanka.

Óvissan liggur fremur í átt til aukinnar verðbólgu þegar horft er til næstu missera og til næstu ára. "Eftirspurn er vaxandi í hagkerfinu og spenna hefur myndast á vinnumarkaði sem mun sennilega leiða til launaskriðs áður en langt um líður. Þá virðist gengi krónunnar líklegra til að lækka en hækka þegar horft er tvö ár fram í tímann. Ef miðað er við spá okkar um lækkandi gengi krónunnar á næsta ári þá er útlit fyrir um 5,3% verðbólgu á því ári og vaxandi verðbólgu á árinu 2007 samhliða frekari gengislækkun. Nánari umfjöllun um verðbólguhorfur má nálgast hér," segir Greining Íslandsbanka.