Sala á makríl til Rússlands hefur verið með venjubundnum hætti fyrstu vikuna í ágúst hjá HB Granda. Þetta segir Garðar Svavarsson, deildarstjóri uppsjávarsviðs hjá HB Granda, í samtali við Morgunblaðið .

Garðar segir að HB Grandi láti mögulegar aðgerðir rússneskra yfirvalda ekki hafa áhrif á starfsemina.

Hermann Stefánsson, framkvæmdastjóri Icelandic Pelagic, segir í samtali við Morgunblaðið að þrátt fyrir að ekki hafi verið selt út til Rússlands í síðustu viku hafi sala verið góð í júlí.

Þá finni fyrirtækið fyrir auknum áhuga viðskiptamanna sinna og vilja til þess að kaupa eins mikið og hægt sé sem fyrst ef til viðskiptabanns kæmi.