Baggalútur ehf., sem er félag sem rekur heimasíðu, tónleikahald og bóka- og tónlistarútgáfu og er í eigu meðlima samnefndrar hljómsveitar, hagnaðist um rúmlega 17 milljónir króna á síðasta rekstrarári samanborið við 11 milljóna króna hagnað árið áður.

Rekstrartekjur félagsins námu 152,8 milljónum króna samanborið við 127,9 milljónir króna árið á undan. Eignir félagsins námu 159,1 milljón króna um síðustu áramót og eigið fé félagsins nam 70,5 milljónum króna. Handbært fé frá rekstri nam 19,9 milljónum króna.

Hlutafé félagsins skiptist jafnt á milli hljómsveitarmeðlimanna sjö, en hver þeirra á 14,29% hlut í félaginu. Bragi Valdimar Skúlason er framkvæmdastjóri félagsins.