Uppgjör flugvélaframleiðandans Boeing á fyrsta ársfjórðungi var betra en markaðsaðilar spáðu. Félagið birti uppgjör sitt í dag og hefur hlutabréfaverð hækkað í kjölfarið fyrir opnun markaða í dag.

Félagið lækkaði þó spá um gengi félagsins á árinu. Jim McNerney, stjórnarformaður Boeing, segir að árið byrji vel og að reynsluflug á 787 og 747-8 þotum félagsins gangi vel.