MMR hefur birt niðurstöður úr könnun á fylgi stjórnmálaflokka og stuðningi við ríkisstjórnina, en hún var framkvæmd á tímabilinu 21. til 25. nóvember 2014. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 36,4% en mældist 33,0% í síðustu mælingu, sem lauk þann 4. nóvember síðastliðinn.

Sjálfstæðisflokkurinn er með mesta fylgið en það mældist nú 25,4% borið saman við 23,6% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 16,5% og eykst um 0,4% frá síðustu könnun. Stuðningur við Bjarta framtíð minnkar milli kannana, en fylgið mældist nú 15,5% en var 18,6% síðast.

Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,8% og dregst saman um hálft prósentustig frá síðustu könnun. Vinstri grænir mælast með meiri stuðning en síðast en hann mældist nú 11,2% borið saman við 10,7% í síðustu könnun. Þá mældist fylgi Pírata 10,6% borið saman við 11,3% í síðustu könnun, en fylgi annarra flokka mældist undir 2%.

Nánar má lesa um niðurstöður könnunarinnar hér .