Rekstrarniðurstaða aðalsjóðs Reykjavíkurborgar, sem hefur með hinn almenna rekstur borgarinnar að gera, var jákvæð um 803 milljónir króna. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að niðurstaðan yrði neikvæð um 2.369 milljónir króna. Niðurstaðan var því um rúmum þremur milljörðum betri en áætlað var, eins og komist er að orði í samantekt á vefsíðu Reykjavíkurborgar.

„Þetta skýrist einkum af því að skatttekjur voru umfram áætlun, gjaldfærsla vegna breytingar lífeyrisskuldbindingar og húsaleigubætur voru undir áætlun og fagsviðin héldu sig innan fjárheimilda að mestu þrátt fyrir þungar hagræðingarkröfur," segir á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Ársreikningur borgarinnar var lagður fram á fundi borgarstjórnar í dag.

Rekstrarniðurstaða Eignasjóðs var jákvæð um 670 milljónir króna, en áætlun gerði ráð fyrir 2.264 milljóna króna hagnaði . „Frávik frá áætlun er því 1.594 mkr, sem skýrist einkum af niðurfærslu krafna  að fjárhæð 1.147 mkr og breyttum reikningsskilaaðferðum vegna leiguskuldbindinga sem ekki var áætlað fyrir. Viðbótargjaldfærslur vegna þeirra nema 420 mkr," segir á vef Reykjavikurborgar.

Hærri útsvarstekjur

Rekstrarniðurstaða A-hluta, sem er sameiginleg niðurstaða fyrir aðalsjóð og eignasjóð, var því jákvæð um 1.472 mkr en endurskoðuð áætlun gerði ráð fyrir að niðurstaðan yrði neikvæð um 105 mkr.

„Góða afkomu A-hluta má einkum rekja til  hærri útsvarstekna en áætlaðar voru sem skýrist af meiri launahækkunum og áhrifum úttektar á séreignarsparnaði. Þá voru tekjur af fasteignagjöldum vanáætlaðar um rúmlega 800 mkr þar sem álagningarstofn lá ekki fyrir við gerð áætlunar. Rekstrarútgjöld reyndust hins vegar um 1.100 mkr hærri en áætlað var," segir á vef borgarinnar.

Hægt er að skoða reikninginn hér .